Jæja, þar sem ég hef nú ekki verið dugleg að blogga undanfarið þá ákvað ég að setja inn smá annál fyrir árið 2008.... njótið vel
Já, ég verð nú að
viðurkenna það að ég man voða lítið eftir byrjun ársins. Nema að ég var með tvo
nema frá íþróttaakademíunni þannig að ég kenndi lítið sem ekkert í janúar. />
Svo kepptu
krakkarnir mínir úr Heiðarskóla í undankeppni Skólahreystis og unnu hana.
Þannig að þau kepptu í úrslitunum í Laugardalshöllinni í apríl og lentu í 4.
sæti, ýkt stolt af krökkunum mínum J />
Auðvitað æfði ég
eins og vitleysingur fyrstu mánuði ársins fyrir Þrekmeistarann sem var apríl.
Þar bætti ég tímann minn og 5 fræknar settu nýtt Íslandsmet í liðakeppninni,
ótrúlega flottar skvísur. />
Hann Baldur
frændi minn lést á afmælisdaginn minn, blessuð sé minning hans og ég veit að
honum líður betur þar sem hann er núna. />
Eftir skólaslit í
skólanum skellti ég mér í tvær vikur til Costa del Sol. Það var frábært að
komast aðeins í burtu og sóla sig. Ekki skemmdi fyrir að vera í góðum
félagsskap og vera á Spáni þegar Spánverjar urðu Evrópumeistarar í fótbolta,
algjör snilld. />
Jæja, eftir
sólarferðina kom ég heim í 10 daga og fór svo til Portúgals með fjóra yndislega
unglinga í alþjóðlegar sumarbúðir CISV. Við vorum í þrjár ógleymanlegar vikur í
Lissabon, kynntumst æðislegu fólki sem við munum pottþétt hitta eitthvað aftur. />
Ég byrjaði svo að
kenna í Heiðarskóla um miðjan ágúst og hélt áfram að þjálfa körfubolta fyrir
Keflavík. />
Þann 23. ágúst
fór svo amma Dísa á betri stað. Það var ótrúlega erfiður tími og skrítið að
hugsa til þess að hún verði ekki heima í Odda þegar ég fer í heimsókn. />
Í september
byrjaði ég í skólanum mínum en ég ákvað að fara í einkaþjálfarann ÍAK hjá Keili
og tekur það nám einn vetur. Só far hefur það gengið mjög vel og ég hlakka til
að læra meira en það sem ég hef lært í vetur hehehe />
Stóra systir
giftist sínum heitelskaða í nóvember og áttum við yndislega stund í Brekkuskóg
með þeim þegar þau hnýttust saman í eina sæng J />
Helgina eftir
brúðkaupið skellti ég mér svo til Akureyrar í Þrekmeistarann. Þar bætti ég
tímann minn enn og aftur. Í fyrst skiptið síðan ég byrjaði að keppa í
Þrekmeistaranum komst ég á pall en ég lenti í 3. sæti..... jibbbí kóla J hehe já og ,,15 mín. í mót” liðið okkar Topp 5
vann auðvitað liðakeppnina.... þvílíkir snillingar á ferð. />
Síðustu vikurnar
á árinu fóru svo í lærdóm, þ.e. að læra fyrir próf. />
Annars er ég
ótrúlega sátt með árið sem er að líða. Margar gleðistundir og aðrar
sorgarstundir, en ég mun hlýja mér við minningar sem ég mun varðveita um aldur
og ævi. />
Ég hlakka til að
takast á við ný verkefni á nýju ári. />
Gleðilegt nýtt ár
og megi árið 2009 færa ykkur gleði og gæfu. />